Anita Lind með U-17 ára til Svartfjallalands
Anita Lind Daníelsdóttir er í U-17 ára landsliði Íslands sem tekur þátt í undanriðli Evrópumóts U17 kvenna sem fram fer í Svartfjallalandi dagana 20.-28. október. Anita Lind í 18 leikmanna hópi sem Úlfar Hinriksson hefur valið til þátttöku þar.
Anita Lind er fædd árið 1999 og er 16 ára. Hún lék í sumar með RKV í 3. flokki kvenna og á þegar nokkra leiki að baki með meistaraflokki. Anita Lind hefur leikið sex leiki með U-17 ára landsliðinu og skorað í þeim eitt mark.
Við óskum Anitu Lind og liðsfélögum hennar góðs gengis.