Anita og Sveindís með U-19 ára
Anita Lind Daníelsdóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir verða báðar með U-19 ára landsliði kvenna sem leikur vináttulandsleik við Pólland á fimmtudag. Leikurinn verður á Sandgerðisvelli kl. 18:00. Leikurinn er liður í undirbúningi liðsins fyrir undankeppni EM sem fram fer í Finnlandi í september.
Anita og Sveindís hafa báðir áður leikið með U-17 ára landsliðinu. Anita Lind er fædd árið 1999 og er 17 ára en Sveindís Jane er aðeins 15 ára gömul. Þrátt fyrir ungan aldur eru þær fastamenn í meistaraflokki Keflavíkur sem hefur staðið sig með prýði í 1. deildinni í sumar.
Við óskum Anitu, Sveindísi og félögum þeirra góðs gengis í leiknum.
Anita Lind og Sveindís Jane.