Fréttir

Knattspyrna | 22. ágúst 2011

Annar flokkur í bikarúrslit

Strákarnir í 2. flokki eru komnir í úrslit bikarkeppninnar eftir sigur á liði Breiðabliks/Augnabliks í undanúrslitunum.  Leikið var á Nettó-vellinum og lauk leiknum með 4-3 sigri Keflavíkur.  Sigurbergur Elísson skoraði tvö markanna og þeir Arnór Ingvi Traustason og Daníel Gylfason eitt hvor.

Úrslitaleikurinn verður 25. september og þar mætast Keflavík og Haukar/Markaregn.  Þess má geta að Keflavík hefur tvisvar orðið bikarmeistarar í 2. flokki en það var árin 1967 og 1973.

Myndir: Jón Örvar