Annar pistill frá Spáni - Sigur
Vaknað snemma í morgunmatinn og svo æfing kl. 10:00 og allir voru með. Létt æfing og Willum fór yfir ýmis mál og svo fengu markmennirnir þessa fínu skotæfingu. Slökun eftir hádegi hjá leikmönnum enda leikur kl. 18:00. Falur sjúkra og Þór aðstoðar fóru út að hlaupa eftir hádegið enda báðir miklir hlauparar. Annars er nóg að gera hjá Fal í nuddinu. Engin meiðsl hafa komið upp og er það ánægjulegt.
Denia FC-Keflavík 1-4
Einhver misskilningur átti sér stað þegar Keflavík mætti til leiks kl. 17:30 í dag og héldu að leikurinn byrjaði kl. 18:00. Leikmenn Denia voru að týnast á völlinn kl. 18:00 og rúmlega það enda menn í vinnu og leikurinn byrjaði kl. 18:30.
Leikurinn byrjaði rólega og menn að átta sig á grasinu og andstæðingnum. Keflavík var mun betra og Guðmundur Steinarsson skoraði á 13. mínútu með góðu skoti. Á 23. mínútu skoraði Hörður Sveinsson svo með skalla og staðan orðin 0-2. Svo kemur Guðmundur Steinarsson á 33. mínútu með þriðja markið með þrumufleyg fyrir utan teig. Staðan 0-3 í hálfleik og allt stefndi í stóran sigur.
Seinni hálfleikur byrjaði þokkalega. Mark var dæmt af sem Bjarni Hólm skoraði en á 53. mínútu skoraði Ómar Karl gott mark og staðan 0-4. Keflavík sótti mikið og fékk færi sem ekki nýttust. Heimamenn klóruðu svo í bakkann í lokin með ágætismarki sem Árni réð ekki við. Lokatölur 1-4 og Keflavík á að gera mun betur á móti svona andstæðingum.
Byrjunarliðið hjá Keflavík í dag: Ómar, Guðjón, Bjarni, Halli, Alen, Maggi Matt, Hólmar Örn, Gummi Steinars, Ómar Karl, Paul McShane og Hörður.
Varamenn: Árni Freyr, Sigurður Gunnar, Brynjar Örn og Magnús Þór komu allir inn á í hálfleik.
Jóhann Birnir, Einar Orri og Magnús Sverrir hvíldir.
Enn er reynt að koma myndum inn en gengur illa. Kemur bara stærri myndapakki á heimasíðuna þegar heim er komið.
Kveðja,
Jón Örvar