Fréttir

Anton Freyr kominn með samning
Knattspyrna | 3. október 2013

Anton Freyr kominn með samning

Anton Frey Hauksson hefur gert leikmannasamning við Keflavík.  Anton Freyr er 16 ára gamall og lék með 3. flokki í sumar en hann var einnig fastamaður í 2. flokki.  Þá var hann í leikmannahópi Keflavíkur í síðustu umferð Pepsi-deildarinnar en kom reyndar ekki við sögu í leiknum.  Anton Freyr er einnig leikmaður U-17 ára landsliðs Íslands sem sigraði á dögunum sinn riðil í undankeppni Evrópumótsins og tryggði sér sæti í milliriðli.

Það er ánægjulegt að Anton Freyr bætist í stóran hóp ungra leikmanna okkar sem gera samning við félagið.  Keflavík hefur lagt áherslu á að gera samninga við unga leikmenn félagsins og þess má geta að nú eru 15 leikmenn sem eru 20 ára og yngri með samning við Keflavík.