Anton Freyr og Sindri Kristinn í U-17 ára liðinu
Anton Freyr Hauksson og Sindri Kristinn Ólafsson eru í U-17 ára landsliði Íslands sem leikur vináttuleiki gegn Noregi. Liðin leika í Kórnum föstudaginn 28. febrúar og sunnudaginn 2. mars.
Anton Freyr og Sindri Kristinn eru báðir nýorðnir 17 ára en þeir voru í leikmannahópi Keflavíkur í Pepsi-deildarinnar síðasta sumar. Anton Freyr hefur þegar leikið með U-16 og U-17 ára landsliðum Íslands.
Við óskum Antoni Frey, Sindra Kristni og félögum þeirra í landsliðinu góðs gengis í leikjunum.