Fréttir

Anton Freyr skrifar undir
Knattspyrna | 22. febrúar 2016

Anton Freyr skrifar undir

Anton Freyr Hauksson hefur skrifað undir nýjan samning við Keflavík.  Samningurinn er til þriggja ára og gildir því út keppnistímabilið 2018.  Anton Freyr er 19 ára gamall varnarmaður og á að baki einn bikarleik með Keflavík og nokkra leiki í deildarbikarnum.  Hann lék sem lánsmaður með Njarðvík síðasta sumar og lék þá 19 leiki í 2. deildinni.  Anton Freyr hefur leikið með U-19 og U-17 ára landsliðunum.

Á myndinni með fréttinni eru Jón G. Benediktsson formaður Knattspyrnudeildar og Anton Freyr.