Ari og Sindri til Króatíu
Keflavíkingarnir Ari Steinn Guðmundsson og Sindri Kristinn Ólafsson eru á leið til Króatíu með U-19 ára landsliðinu. Þar tekur liðið þátt í undankeppni Evrópumótsins dagana 5.-13. október. Mótherjar strákanna verða Tyrkland, Króatía og Eistland.
Ari og Sindri eru báðir 17 ára gamlir og léku með 2. flokks liði Keflavíkur/Njarðvíkur sem vann B-deild Íslandsmótsins í sumar. Þeir hafa einnig báðir leikið með Keflavík í Pepsi-deildinni í sumar. Þess má geta að Keflvíkingurinn Samúel Kári Friðjónsson er einnig í landsliðshópnum en hann leikur nú með Reading.
Við óskum strákunum góðs gengis ytra.