Fréttir

Knattspyrna | 11. júlí 2011

Arna Lind í U-17 ára liðinu

Arna Lind Kristinsdóttir er í landsliðshópi U-17 ára sem leikur í úrslitakeppni EMU17 kvenna í Sviss nú í júlí.  Ísland mætir Spánverjum 28. júlí í undanúrslitum og leikur síðan 31. júlí til úrslita eða um 3ja sætið.  Arna Lind var fastamaður í liðinu í undankeppninni þar sem liðið tryggði sér sæti í úrslitakeppninni.  Við óskum henni og félögum hennar góðs gengis.