Arnór Ingvi, Ásgrímur og Zoran til WBA
Tveir af efnilegustu leikmönnum okkar, þeir Arnór Ingvi Traustason og Ásgrímur Rúnarsson, fóru á mánudaginn til West Bromwich Albion og verða í eina viku. Með þeim er Zoran Daníel Ljubicic, yfirþjálfari yngri flokka Keflavíkur. Arnór Ingvi og Ásgrímur munu æfa með unglingaliðinu og er æft einu sinni á dag. Zoran mun fylgjast með æfingum liðsins og kynna sér gang mála hjá félaginu. Þeir félagar koma örugglega reynslunni ríkari úr þessari ferð og það er alltaf jákvætt þegar okkar ungu leikmenn fá tækifæri til að öðlast reynslu. Með heimsókn þremenninganna til West Bromwich heldur samstarf félagins við Keflavík áfram en síðasta sumar komu tveir ungir leikmenn enska liðsins til Keflavíkur þó dvöl þeirra yrði styttri en gert var ráð fyrir.
Við óskum þeim Arnóri Ingva, Ásgrími og Zoran góðs gengis ytra.
Arnór Ingvi og Ásgrímur.
Og Zoran...