Fréttir

Arnór Ingvi í U-21 árs liðinu
Knattspyrna | 26. mars 2013

Arnór Ingvi í U-21 árs liðinu

Arnór Ingvi Traustason er í byrjunarliði íslenska U-21 árs landsliðsins sem leikur við Hvít-Rússa.  Þetta er annar leikur Arnórs með U-21 liðinu og sá fyrsti í byrjunarliðinu.

Leikurinn er fyrsti leikur liðsins í riðlakeppni EM 2015.  Leikið verður á Torpedo vellinum í Minsk og hefst leikurinn kl. 13:00 að íslenskum tíma.  Fylgst verður með helstu atriðum leiksins á Facebook síðu KSÍ.  Einnig er bent á textalýsingu á heimasíðu UEFA.

Frétt af vef KSÍ.