Arnór Ingvi með U-21 árs liðinu
Arnór Ingvi Traustason er í U-21 árs landsliði Íslands sem mætir Kasakstan í undankeppni EM 2015. Leikið verður þriðjudaginn 10. september á Kópavogsvelli og hefst leikurinn kl. 16:00. Arnór hefur verið fastamaður í liðinu undanfarið og leikið alla þrjá leiki liðsins í undankeppninni til þessa.
Við óskum Arnóri og félögum hans í liðinu góðs gengis.