Fréttir

Arnór Ingvi og Árni Freyr með U-21 árs liðinu
Knattspyrna | 6. febrúar 2013

Arnór Ingvi og Árni Freyr með U-21 árs liðinu

Þeir Arnór Ingvi Traustason og Árni Freyr  Ásgeirsson eru báðir í landsliðshópi U-21 árs liðsins sem leikur gegn Wales í dag.  Wales og Ísland leika vináttuleik í Llanelli og hefja leik kl. 15:00.  Arnór Ingvi hefur þegar leikið einn leik með U-21 árs liðinu og hefur einnig leikið með yngri landsliðum eins og Árni Freyr. 

Við óskum piltunum og félögum þeirra góðs gengis.