Fréttir

Knattspyrna | 25. ágúst 2011

Arnór Ingvi og Bergsteinn í U-19 ára landsliðið

Þeir Arnór Ingvi Traustason og Bergsteinn Magnússon eru báðir í U-19 ára landsliðshópi Íslands sem mætir Eistlandi í tveimur vináttulandsleikjum í byrjun september.  Bergsteinn hefur verið fastamaður í U-17 ára liðinu og lék sína fyrstu leiki með U-19 ára landsliðinu á móti í Svíþjóð í sumar en Arnór Ingvi lék með U-17 ára liðinu í fyrra.  Það er ánægjulegt að okkar ungu leikmenn eru að fá viðurkenningu fyrir frammistöðu sína en Magnús Þórir Matthíasson er einnig í U-21 árs landsliðinu.  Við óskum piltunum og félögum þeirra góðs gengis í leikjunum framundan.