Arnór Ingvi og Bergsteinn með U-19 ára landsliðinu
Þeir Arnór Ingvi Traustason og Bergsteinn Magnússon eru þessa dagana með U-19 ára landsliði Íslands á Kýpur þar sem liðið leikur í undankeppni Evrópukeppninnar. Íslands tapaði fyrir Lettlandi í fyrsta leik sínum en gerði síðan jafntefli gegn Kýpur. Arnór Ingvi og Bergsteinn voru í byrjunarliði Íslands í báðum leikjunum. Ísland er í neðsta sæti riðilsins en getur samt sem áður tryggt sér sæti í milliriðli með sigri gegn Norðmönnum í síðasta leiknum.