Fréttir

Arnór Ingvi sænskur meistari
Knattspyrna | 2. nóvember 2015

Arnór Ingvi sænskur meistari

Arnór Ingvi Traustason varð um helgina Svíþjóðarmeistari með liði sínu Norrköping.  Arnór átti stóran þátt í sigri félagsins en hann lék nær alla leiki liðsins á tímabilinu og skoraði sjö mörk.  Hann átti að auki tíu stoðsendingar og var þar efstur í blaði í deildinni ásamt öðrum leikmanni.

Arnór Ingvi er fæddur árið 1993 og er 22 ára.  Hann lék með meistarafloki Keflavíkur á árunum 2010-2013 og lék 52 leiki í efstu deild og skoraði tíu mörk.  Auk þess lék hann fjóra bikarleiki.  Arnór Ingvi hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands og hefur undanfarið verið fastamaður í U-21 árs landsliðinu.  Hann lék sem lánsmaður með norska liðinu Sandnes Ulf árið 2012 en gekk svo til liðs við Norrköping ári seinna.

Við óskum Arnóri Ingva innilega til hamingju með þennan frábæra árangur.