Aron Freyr kominn á samning
Aron Freyr Róbertsson hefur bæst í stóran hóp ungra leikmanna Keflavíkur sem hefur gert leikmannasamning við félagið. Hann er fæddur árið 1996 og skrifaði á dögunum undir tveggja ára samning. Aron Freyr leikur með 2. flokki en var í herbúðum Víðis síðasta sumar og lék þá 16 leiki í 3. deildinni og skoraði þrjú mörk.
Þess má geta að faðir Arons er Róbert Sigurðsson sem lék með Keflavík á árunum 1992 til 1999. Hann lék á sínum tíma 78 leiki fyrir félagið í efstu deild og skoraði átta mörk sem voru gjarnan glæsileg og mikilvæg.
Á myndinni með fréttinni eru þeir feðgar Róbert og Aron Freyr.