Ársmiðasala á fimmtudag og föstudag
Nú styttist í að Pepsi-deildin hefjist en fyrsti heimaleikur okkar verður gegn KR í 2. umferðinni sunnudaginn 12. maí. Það er því rétt að ganga tímanlega frá kaupum á ársmiða en þeir gilda á alla heimaleiki Keflavíkur í Pepsi-deildinni í sumar. Hver miði kostar 13.000 kr. sem er sama verð og í fyrra.
Hægt verður að nálgast ársmiða á skrifstofu Knattspyrnudeildar fimmtudaginn 2. maí kl. 10:00-14:00. Á föstudag verða leikmenn meistaraflokks svo í Nettó kl. 15:00-18:00 og selja ársmiða. Það er því upplagt að kíkja þangað, kaupa miða og hitta leikmenn og ræða um komandi leiktíð.
Við hvetjum stuðningsmenn til að kaupa ársmiða á leiki okkar. Verðið er auðvitað hagstætt og um leið styður fólk deildina og knattspyrnuna í Keflavík.