Ársmiðasala á þriðjudag, miðvikudag og föstudag
Nú styttist í fyrsta heimaleikinn í Pepsi-deildinni og í vikunni gefst stuðningsmönnum tækifæri til að kaupa ársmiða á heimaleiki Keflavíkur. Ársmiðar verða seldir á skrifstofu Knattspyrnudeildar í félagsheimilinu við Sunnubraut á þriðjudag kl. 13:00-16:00 og á miðvikudag kl. 10:00-16:00. Miðarnir verða svo til sölu í Nettó á föstudaginn kl. 14:00-17:00 en þar munu leikmenn liðsins mæta og selja miða.
Hver ársmiði kostar 13.000 kr. og gildir á alla heimaleiki Keflavíkur í Pepsi-deildinni í sumar.