Ársmiðasala í Nettó í dag kl. 15:00-18:00
Nú styttist í að Pepsi-deildin hefjist en fyrsti heimaleikur okkar verður gegn KR í 2. umferðinni sunnudaginn 12. maí. Það er því rétt að ganga tímanlega frá kaupum á ársmiða en þeir gilda á alla heimaleiki Keflavíkur í Pepsi-deildinni í sumar. Hver miði kostar 13.000 kr. sem er sama verð og í fyrra.
Á föstudag verða leikmenn meistaraflokks í Nettó kl. 15:00-18:00 og selja ársmiða. Það er því upplagt fyrir stuðningsmenn að koma við, kaupa ársmiðana og spjalla við strákana okkar um komandi leiktíð. Og kannski gefa einhver góð ráð...
Við hvetjum stuðningsmenn til að kaupa ársmiða á leiki okkar. Verðið er auðvitað hagstætt og um leið styður fólk deildina og knattspyrnuna í Keflavík.