Ársmiðasala í vikunni
Fyrsti heimaleikur Keflavíkur í Pepsi-deildinni verður gegn KR sunnudaginn 12. maí kl. 19:15. Að sjálfsögðu mæta allir á völlinn enda stórleikur.
Þeir sem vilja tryggja sér miða á alla heimaleiki Keflavíkur í Pepsi-deildinni á góðu verði geta nálgast ármiða á skrifstofu aðalstjórnar Keflavíkur á þriðjudag, miðvikudag og föstudag kl. 10:00-15.30.. Hver miði kostar 13.000 kr. en það er sama verð og í fyrra.
Við hvetjum stuðningsmenn til að kaupa ársmiða á leiki okkar. Verðið er auðvitað hagstætt og um leið styður fólk deildina og knattspyrnuna í Keflavík.
Nánari upplýsingar veitir Einar Haraldsson í símum 421-3044 og 897-5204.