Ársmiðasala í vikunni
Ársmiðar á heimaleiki Keflavíkur verða til sölu á skrifstofu Knattspyrnudeildar þriðjudag, miðvikudag og föstudag kl. 10:00-14:00. Ársmiðar verða einnig seldir í miðasölunni á fyrsta heimaleik sumarsins sem verður gegn Þór sunnudaginn 4. maí kl. 16:00. Þá verða leikmenn meistaraflokks í Nettó á föstudaginn 13:30-16:30 og selja ársmiða. Þar er upplagt fyrir stuðningmenn að kíkja í Nettó og versla og hitta um leið strákana og spjalla við þá um sumarið.
Ársmiðinn kostar 13.000 kr. sem er sama verð og í fyrra en miðinn gildir á alla heimaleiki Keflavíkur í Pepsi-deildinni.
Við hvetjum stuðningsmenn til að kaupa ársmiða á leiki okkar og styðja þannig deildina og knattspyrnuna í Keflavík.