Fréttir

Knattspyrna | 8. nóvember 2011

Ásgrímur gerir nýjan samning

Einn af okkar ungu og efnilegu leikmönnum, Ásgrímur Rúnarsson, hefur gert nýjan samning við Keflavík og gildir hann til ársins 2013.  Ásgrímur er 18 ára gamall og leikur sem miðvörður.  Þrátt fyrir ungan aldur þreytti hann frumraun sína með meistaraflokki í sumar og lék eina þrjá leiki í Pepsi-deildinni.  Auk þess varð Ásgrímur bikarmeistari með 2. flokki og átti því eftirminnilegt sumar.  Hann hefur leikið sjö leiki með U-17 ára landsliði Íslands og þrjá leiki með U-19 ára liðinu.