Fréttir

Ási með samning
Knattspyrna | 23. febrúar 2016

Ási með samning

Ási Þórhallsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Keflavík.  Ási er tvítugur varnarmaður sem lék með yngri flokkum Keflavíkur en hann hefur einnig leikið með Njarðvík og FH.  Síðasta sumar lék Ási með Sindra og spilaði þá 18 leiki í 2. deildinni og skoraði tvö mörk.

Undanfarið hefur verið gengið frá samningum við nokkra af okkar ungu og efnilegu leikmönnum.  Áður höfðu Anton Feyr Hauksson, Ari Steinn Guðmundsson og Leonard Sigurðsson allir skrifað undir þriggja ára samning við Keflavík.

Á myndinni með fréttinni eru Jón G. Benediktsson formaður Knattspyrnudeildar og Ási.