Átta liða úrslitin framundan
Nú er ljóst að við mætum FH í átta liða úrslitum Lengjubikarsins. Leikurinn verður í Reykjaneshöllinni föstudaginn 8. apríl kl. 19:00.
Keflavík tryggði sér sæti í átta liða úrslitunum með því að verða í 2. sæti í sinum riðli en FH-ingar unnu sinn riðil. Það er því verðugt verkefni framundan að mæta Íslandsmeisturunum. Liðið sem sigrar mætir KR eða Fylki í undanúrslitunum sem verða 15. apríl.