Fréttir

Auglýst eftir þjálfara
Knattspyrna | 6. september 2013

Auglýst eftir þjálfara

Knattspyrnudeild Keflavíkur auglýsir eftir þjálfara.
Fullt starf á ársgrundvelli.
Mjög fjölbreytt og skemmtilegt starf í góðu umhverfi.

Starfslýsing í stuttu máli.
• Yfirþjálfun mfl. kvenna og 2. fl. kvenna, yfirþjálfari yngri flokka, þjálfari í einum yngri flokk, ásamt því að vera íþróttafulltrúi knattspyrnudeildar.
• Þjálfarinn hefur yfirumsjón með faglegu starfi yngri flokka.
• Þjálfarinn hefur umsjón með mótamálum, dómaramálum ásamt yfirumsjón með knattspyrnuskóla Keflavíkur á sumrin.
• Þjálfarinn sýnir frumkvæði í að gera knattspyrnu í Keflavík betri.

Menntunar- og hæfnikröfur:
• Reynsla af þjálfun.
• Þjálfaramenntun sem nýtist í starfi.
• Þekking og ódrepandi áhugi á knattspyrnu.

Eiginleikar:
• Góðir skipulags- og stjórnunarhæfileikar ásamt hæfni í mannlegum samskiptum.
• Sjálfstæð vinnubrögð og hæfileiki til að vinna með öðrum.
• Samstarfsvilji og jákvæðni.

Umsóknir ásamt ferilskrá sendist fyrir 20. september á netfangið kef-fc@keflavik.is.
Fyrirspurnum um starfið svara.
Þorsteinn Magnússon, formaður, s. 892-8058, kef-fc@keflavik.is.
Smári Helgason, formaður barna- og unglingaráðs, s. 691-2000, smari@afangar.is.