Augnablik - Keflavík á miðvikudag kl. 20:30
Þá er bikarinn að byrja en á miðvikudag leika Augnablik og Keflavík í 32 liða úrslitum Borgunarbikars karla. Leikurinn verður í Kórnum í Kópavogi og hefst kl. 20:30. Dómari leiksins verður Valdimar Pálsson, aðstoðardómarar þeir Helgi Mikael Jónasson og Þórður Arnar Árnason en eftirlitsmaður KSÍ er Haukur Ingi Jónsson.
Dregið verður í 16 liða úrslit Borgunarbikarsins á föstudag kl. 12:00 í höfuðstöðvum KSÍ.