Fréttir

Knattspyrna | 5. desember 2006

Baldur til Lyn

Baldur Sigurðsson, leikmaður Keflavíkur og U21 árs landsliðs Íslands, er nú til reynslu hjá Lyn í Osló.  Baldur fór til Noregs í gær og verður fram á sunnudag.  Ferðin hafði stuttan aðdraganda en norska félagið hafði samband við Keflavík og vildi skoða Baldur við fyrsta tækifæri.  Það ætti ekki að væsa um Baldur í Osló því með Lyn leikur Stefán Gíslason, fyrrum leikmaður Keflavíkur.