Barna og unglingaráð Knattspyrnudeildar Keflavíkur gefur gamla keppnisbúninga til ABC
Barna og unglingaráð Knattspyrnudeildar Keflavíkur gefur gamla keppnisbúninga til ABC hjálparstarfs í Búrkína Fasó í Afríku. Ólafía K. Norðfjörð er að fara í 12 daga hjálparstarf til Afríku og leitaði til okkar með þessa hugmynd sem var vel tekið.
Á myndinni er Ólafía með fráfarandi formanni BUR , Smára Helgasyni og viðtakandi formanni Svavari M.Kjartanssyni. Keflavík óskar henni góðrar ferðar og þakkar fyrir góða hugmynd að endurnýta búninga og gleðja afrísk börn í leiðinni.
Barna- og unglingaráð Knattspyrnudeildar Keflavíkur