Bergsteinn með U-19 ára landsliðinu
Bergsteinn Magnússon er í U-19 ára landsliðshópi Íslands sem leikur á alþjóðlegu móti i Svíþjóð dagana 18.-24. júlí. Leikmenn í þessum hópi eru fæddir 1994 og síðar en leikið er gegn Wales, Svíþjóð og Noregi. Bergsteinn á að baki níu leiki með U-17 ára landsliðinu og var fyrirliði þess í undankeppni Evrópmótsins á síðasta ári. Við óskum Bergsteini og félögum hans góðs gengis í Svíþjóð.