Fréttir

Knattspyrna | 4. júlí 2011

Bikarinn búinn eftir tap gegn KR

Keflavík er úr leik í Valitor-bikarnum þetta árið eftir 3-2 tap gegn KR í fjörugum leik í Vesturbænum.  Magnús Þórir Matthíasson kom Keflavík yfir í byrjun leiks en þeir Baldur Sigurðsson, Bjarni Guðjónsson og Guðjón Baldvinsson komu heimamönnum í 3-1.  Andri Steinn Birgisson minnkaði muninn en þrátt fyrir góðar sóknir undir lokin tókst Keflavík ekki að jafna.

Næsti leikur er heimaleikur gegn Fram miðvikudaginn 6. júlí kl. 19:15.

  • Leikurinn var tólfti bikarleikur Keflavíkur og KR.  KR-ingar hafa nú unnið sjö leiki en Keflavík fimm og markatalan er 20-26 fyrir KR.
          
  • Magnús Þórir Matthíasson skoraði sitt þriðja mark í bikarkeppninni í sínum sjötta bikarleik.  Magnús skoraði einnig gegn Hetti í 32 liða úrslitunum.
        
  • Andri Steinn Birgisson skoraði sitt annað bikarmark fyrir Keflavík en það fyrsta kom gegn Haukum í síðustu umferð.
       

Fótbolti.net
KR vann í kvöld 3-2 sigur á liði Keflavíkur í stórskemmtilegum leik í Vesturbænum þar sem liðin mættust í 8-liða úrslitum Valitor bikarsins. Leikurinn byrjaði með algerri flugeldasýningu þar sem tvö mörk litu dagsins ljós á fyrstu átta mínútunum, en þegar uppi var staðið áttu KR-ingar sigurinn fyllilega skilinn.

Fréttablaðið / Vísir
„Þetta var frábær leikur og við fengum óskabyrjun sem við náum ekki að nýta okkur," sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari Keflavíkur, í kvöld. „Við misstum aðeins tökin á leiknum þegar við komumst yfir og reyndum strax að halda fengnum hlut í staðin fyrir að vera örlítið meira afslappaðri".

„Við leyfum þeim samt sem áður að skora full einföld mörk í leiknum. Þeir skora síðan þriðja markið, þá héldu allir að leikurinn væri búinn en mitt lið neitaði að gefast upp. Strákarnir eiga hrós skilið fyrir að gefast ekki upp og ná að minnka muninn og með smá heppni hefðum við ná að jafna leikinn," sagði Willum.

Morgunblaðið / Mbl.is
KR var fjórða liðið til að tryggja sæti sitt í undanúrslitum bikarkeppninnar í knattspyrnu, Valitor-bikarsins, í gær. Þeir unnu Keflavík í Frostaskjólinu 3:2. Þrátt fyrir leiðinlegar aðstæður til knattspyrnuiðkunar, rok og rigningu og þungan völl var leikurinn hin mesta skemmtun. Hart var barist og virtist enn hiti í mönnum frá því liðin mættust fyrr í sumar á þessum sama velli. Það var heldur ekki að sjá á liðunum að þau væru búin að spila þétt undanfarna daga slíkur var hraðinn í leiknum; Keflavík þrjá leiki á sex dögum og KR þrjá á sjö með ferðalagi til Færeyja.

Víkurfréttir
Nú rétt í þessu lauk bikarleik KR og Keflvíkinga í Frostaskjóli með sigri KR-inga. Keflvíkingar komust yfir á 5. mínútu þegar Magnús Þórir Matthíasson skoraði af stuttu færi eftir undirbúning Hilmars Geirs Eiðssonar.

KR jafnaði fljótlega þegar vörn Keflvíkinga gleymdi sér eitt augnablik og Baldur Sigurðsson skoraði. Bjarni Guðjónsson skoraði svo skömmu fyrir leikhlé og KR voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik.

Guðjón Baldvinsson skoraði þegar klukkustund var liðin af leiknum og allt stefndi í sigur KR-inga. Keflvíkingar sýndu þrautseigju og Andri Steinn Birgisson skoraði skömmu eftir mark Guðjóns og minnkaði muninn í 3-2. Í lok leiks hefðu Keflvíkingar getað tryggt sér framlengingu en heppnin var ekki með þeim að þessu sinni.
Myndasafn Víkurfrétta frá leiknum

 
Valitor-bikar karla, KR-völlur, 3. júlí 2011
KR 3
(Baldur Sigurðsson 8., Bjarni Guðjónsson 41., Guðjón Baldvinsson 58.)
Keflavík 2 (Magnús Þórir Matthíasson 5., Andri Steinn Birgisson 65.)

Keflavík: Ómar Jóhannsson, Guðjón Árni Antoníusson, Goran Jovanovski, Adam Larsson, Haraldur Freyr Guðmundsson fyrirliði, Hilmar Geir Eiðsson, Jóhann Birnir Guðmundsson, Einar Orri Einarsson, Andri Steinn Birgisson, Magnús Þórir Matthíasson (Magnús Sverrir Þorsteinsson 29.), Guðmundur Steinarsson (Arnór Ingvi Traustason 67.). 
Varamenn: Árni Freyr Ásgeirsson, Viktor Smári Hafsteinsson, Magnús Þór Magnússon, Frans Elvarsson, Bojan Stefán Ljubicic.
Gul spjöld: Einar Orri Einarsson (36.), Guðmundur Steinarsson (37.)

Dómari: Valgeir Valgeirsson.
Aðstoðardómarar: Frosti Viðar Gunnarsson og Oddbergur Eiríksson.
Varadómari: Guðmundur Ársæll Guðmundsson.
Eftirlitsdómari: Ólafur Ragnarsson.
Áhorfendur: 956.




Magnús Þórir kemur Keflavík yfir snemma leiks.
(Mynd frá Víkurfréttum)