Fréttir

Knattspyrna | 17. ágúst 2011

Bikarleikur hjá 2. flokki

Fimmtudaginn 18. ágúst leikur 2. flokkur í undanúrslitum Valitor-bikarsins.  Leikurinn fer fram á Nettó-vellinum kl. 18:30 og mótherjarnir eru Breiðablik/Augnablik.  Sigurliðið leikur til úrslita í bikarkeppni 2. flokks þann 25. september gegn Haukum/Markaregni eða ÍBV/KFS/KFR.

Við hvetjum stuðningsmenn til að mæta og styðja strákana sem hafa verið að standa sig vel í sumar.  Liðið er nú í 4. sæti Íslandsmótsins og komið í undanúrslit bikarsins enda eru margir efnilegir piltar í liðinu.  Þess má geta að tíu leikmenn 2. flokks hafa verið í leikmannahópi Keflavíkur í Pepsi-deildinni í sumar.


Arnór Ingvi, Árni Freyr, Bojan Stefán, Magnús Þór og Viktor Smári
eru meðal okkar efnilegu leikmanna í 2. flokki.