Fréttir

Bikarleikur hjá 2. flokki á sunnudag
Knattspyrna | 28. júní 2014

Bikarleikur hjá 2. flokki á sunnudag

Sunnudaginn 29. júní leikur 2. flokkur Keflavíkur/Njarðvík í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar.  Mótherjarnir verða Fylkir/Elliði en leikurinn verður á Njarðtaksvellinum í Njarðvík kl. 14:00.

Í síðustu viku lék flokkurinn gegn UÍA og hafði betur 2-1.  Leonard Sigurðsson kom okkar strákum yfir í leiknum og það var svo Beneditk Jónsson sem tryggði sigurinn með skalla eftir fast leikatriði í lokin.  Keflavík/Njarðvík er þar með komið á toppinn í B-deild Íslandsmótsins.  Næsti leikur er á útivelli gegn Fram þriðjudaginn 1. júlí.

B-liðið lék gegn Fjölni 2 og vann þar öruggan 9-0 sigur.  Guðmundur Juanito Ólafsson skoraði fjögur mörk í þeim leik, Adam Þórðarson gerði þrennu og Óðinn Jóhannsson og Bjarni Fannar Bjarnason gerðu eitt mark hvor.  Næsti leikur hjá B-liðinu er á útivelli gegn Gróttu á mánudaginn.