Bikarsigur hjá 2. flokki
Lið 2. flokks lék bikarleik gegn Haukum á dögunum en leikið var í Hafnarfirði. Strákarnir vígðu nýja búninga í leiknum og þeir gáfust enda vann Keflavík/Njarðvík öruggan 5-0 sigur. Það er vel að verki staðið enda leika Haukar í A-riðli Íslandsmótsins en okkar strákar eru í B-rðili. Í næstu umferð bikarsins verða andstæðingarnir Fylkir/Elliði og fer sá leikur fram á Iðavöllum föstudaginn 27. júní.
Liðið lék síðan gegn Aftureldingu í Íslandsmótinu og þar unnu bæði A- og B-liðin. Hjá A-liðunum var aðeins gert eitt mark og það gerði Einar Þór Kjartansson með glæsilegu skoti af löngu færi. Það var meira fjör hjá B-liðinum en þar vann Keflavík/Njarðvík 6-3.
Næsti leikur hjá A-liðinu verður föstudaginn 20. júní gegn UÍA. Leikurinn verður á Njarðtaksvellinum kl. 20:00 og við hvetjum alla til að mæta og fylgjast með strákunum.
Þriðjudaginn 24. júní er svo komið að næsta leik hjá B-liðinu en hann verður gegn Fjölni á Iðavöllum kl. 20:00.