Bikarúrslit 2. flokks á þriðjudag
Lið Keflavíkur/Njarðvíkur leikur til úrslita í bikarkeppni 2. flokks þriðjudaginn 27. september gegn Fjölni. Leikurinn verður á Nettó-vellinum í Keflavík og hefst þar kl. 16:00. Dómari leiksins verður Helgi Mikael Jónasson og aðstoðardómarar þeir Gylfi Tryggvason og Þórður Arnar Árnason.
Við hvetjum stuðningsmenn Keflavíkur og Njarðvíkur að sjálfsögðu til að mæta og styðja okkar stráka.