Fréttir

BIKARÚRSLIT: Dagskrá dagsins
Knattspyrna | 15. ágúst 2014

BIKARÚRSLIT: Dagskrá dagsins

Við minnum á að stuðningsmenn Keflavíkur ætla að hittast í Ölveri í Glæsibæ frá kl. 12:00 á laugardaginn.  Þar er síðasta tækifæri til að næla sér í húfur og trefla fyrir leikinn og fer víst hver að verða síðastur.

Liðsrútan kemur við í Ölveri um kl. 14:30 í leið sinni í Laugardalinn.

Um klukkutíma fyrir leik verður gengið fylktu liði frá Ölveri og á völlinn.  Þar verðum við norðanmegin í stúkunni, þ.e. nær Laugardalslauginni.

Leikurinn byrjar svo á Laugardalsvelli kl. 16:00 og þá er það bara: Áfram Keflavík!