Bikarúrslit framundan hjá 3. flokki
Lið 3. flokks er komið í bikarúrslit eftir 3-0 sigur á KR í undanúrslitum keppninnar. Það var Stefan Alexander Ljubicic sem sá um alla markaskorunina í leiknum og skoraði þrennu. Strákarnir leika til úrslita gegn Fram en úrslitaleikurinn fer fram laugardaginn 5. september kl. 12:00. Leikstaður hefur ekki verið ákveðinn.
Við óskum strákunum góðs gengis í úrslitaleiknum.