Fréttir

BIKARÚRSLIT: Magnús með flesta bikarleiki og mörk
Knattspyrna | 12. ágúst 2014

BIKARÚRSLIT: Magnús með flesta bikarleiki og mörk

Þegar reynsla leikmanna Keflavíkur í bikarnum er skoðuð kemur í ljós að þar er Magnús Þorsteinsson efstur á blaði.  Magnús er með flesta bikarleiki af þeim leikmönnum sem nú skipa Keflavíkurliðið en hann hefur leikið 30 leiki fyrir Keflavík í bikarnum.  Magnús er einnig með flest mörk eða 10 en árið í ár er 13. keppnistímabilið sem hann tekur þátt í bikarnum með Keflavík.  Næstir koma fyrirliðinn Haraldur Freyr Guðmundsson og Jóhann Birnir Guðmundsson.

Magnús er einnig sá eini í leikmannahópnum sem hefur tvisvar orðið bikarmeistari með Keflavík, árin 2004 og 2006.  Jóhann Birnir vann bikarinn með Keflavík árið 1997, fyrir 17 árum síðan.  Haraldur Freyr og Hörður Sveinsson urðu bikarmeistarar árið 2004 og Einar Orri Einarsson árið 2006.

Keflavík varð síðast bikarmeistari árið 2006 og vann þá einmitt KR í úrslitaleiknum.  Tveir leikmenn sem voru þá í leikmannahópi Keflavíkur eru enn með liðinu í dag en það eru Magnús Þorsteinsson og Einar Orri Einarsson.  Hins vegar verða tveir leikmenn Keflavíkur í þeim leik með KR í úrslitaleiknum næsta laugardag en það eru að sjálfsögðu Baldur Sigurðsson og Jónas Guðni Sævarsson.

Nafn Leikir/Mörk Tímabil Meistari
Magnús Þorsteinsson 30/10 13 Bikarmeistari 2004 og 2006
Haraldur Freyr Guðmundsson 25/5 10 Bikarmeistari 2004
Jóhann B. Guðmundsson 22/7 10 Bikarmeistari 1997
Hörður Sveinsson 17/2 9 Bikarmeistari 2004
Einar Orri Einarsson 14/1 8 Bikarmeistari 2006
Magnús Þórir Matthíasson 10/4 5  
Frans Elvarsson 7/1 4  
Sigurbergur Elísson 4 3  
Bojan Stefán Ljubicic 3 2  
Elías Már Ómarsson 3 2  
Halldór Kristinn Halldórsson 3 2  
Endre Ove Brenne 3 1  
Jonas Sandqvist 3 1  
Unnar Már Unnarsson 3 1  
Ari Steinn Guðmundsson 2 1  
Daníel Gylfason 2 1  
Sindri Snær Magnússon 2/1 1  
Theodór Guðni Halldórsson 2/3 1  
Anton Freyr Hauksson 1 1  
Aron Grétar Jafetsson 1 1  
Aron Rúnarsson Heiðdal 1 1  
Árni Freyr Ásgeirsson 1 1  
Fannar Orri Sævarsson 1 1  
Leonard Sigurðsson 1 1  
Sindri Kristinn Ólafsson 1 1  
Hilmar Þór Hilmarsson - 1  
Ray Anthony Jónsson - -