Fréttir

Knattspyrna | 3. nóvember 2004

Björg Ásta í landsliðinu

Björg Ásta Þórðardóttir er í landsliðshópnum sem mætir Noregi í tveimur leikjum um laust sæti í Evrópukeppni kvennalandsliða.  Leikirnir fara fram í Egilshöll 10. nóvember og í Osló 13. nóvember.  Það er ánægjulegt að Björg Ásta, sem hefur leikið 8 A-landsleiki, sé í hópnum en hún var lykilmaður í liði Keflavíkur sem sigraði í 1. deildinni í sumar.