Björg Ásta og Nína Ósk með U21 árs liðinu
Landslið Íslands skipað leikmönnum U21 árs tekur nú þátt í Opna Norðurlandamótinu sem haldið er í Karlstad í Svíþjóð.
Björg Ásta Þórðardóttir og Nína Ósk Kristinsdóttir eru í landsliðshópnum. Liðið lék í gær, miðvikudag, við firnasterkt lið Bandaríkjanna og biðu íslensku stúlkurnar ósigur, 0-4. Björg Ásta hóf leik sem miðvörður í leiknum. Bandaríska liðið var með tveggja marka forustu í hálfleik. Næsti leikur liðsins verður við Þýskaland á föstudag.
Sjá nánari umfjöllun á www.ksi.is.
Björg Ásta og Nína Ósk eru með U21 árs landsliðinu í Svíþjóð.
(Myndir: Jón Örvar Arason)