Fréttir

Bojan framlengir
Knattspyrna | 19. janúar 2014

Bojan framlengir

Bojan Stefán Ljubicis hefur framlengt samning sinn við Keflavík til næstu þriggja ára.  Bojan er 21 árs og lék fyrst með meistaraflokki árið 2009 eftir að hafa leikið með yngri flokkum Keflavíkur.  Hann hefur þegar leikið 51 leik í efstu deild og skorað í þeim fimm mörk.  Bojan á að baki leiki með U-19 ára landsliði Íslands.  Eins og stuðningsmenn Keflavíkur vita á Bojan ekki langt að sækja knattspyrnuhæfileikana en hann er aiðvitað sonur Zoran Daníels Ljubicic, fyrrum fyrirliða og þjálfara Keflavíkurliðsins.