Fréttir

Knattspyrna | 27. maí 2009

Breiðablik - Keflavík á fimmtudag kl. 19:15

Þá er komið að 5. umferð Pepsi-deildarinnar og að þessu sinni heimsækja okkar menn Blika í Kópavoginn.  Leikurinn fer fram á Kópavogsvelli fimmtudaginn 28. maí og hefst kl. 19:15.  Okkar lið vill að sjálfsögðu fylgja eftir tveimur góðum sigrum en Blikar hafa tapað tveimur síðustu leikjum og vilja sjálfsagt bæta úr því.  Fyrir umferðina er Keflavík í 3.-5. sæti deildarinnar með 9 stig en Breiðablik er í því 6. með 6 stig.  Dómari leiksins verður hinn síhressi Eyjólfur M. Kristinsson, aðstoðardómarar hans verða Áskell Þór Gíslason og Leiknir Ágústsson en eftirlitsmaður KSÍ er Ólafur Ragnarsson.

Keflavík og Breiðablik hafa leikið 40 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1971.  Keflavík hefur unnið 20 leiki og Breiðablik 11 en níu leikjum hefur lokið með jafntefli.  Markatalan er 74-53 fyrir Keflavík.  Stærsti sigur Keflavíkur í leikjum liðanna er 5-0 sigur árið 2006 en Breiðablik vann 3-0 sigur á heimavelli árið 1982.  Fimm leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn Blikum í efstu deild; Haukur Ingi Guðnason hefur skorað þrjú mörk, Stefán Örn Arnarson tvö og þeir Símun Samúelsen, Hólmar Örn Rúnarsson og Guðjón Árni Antoníusson hafa skorað eitt mark hver. 

Keflavík og Breiðablik hafa leikið sjö leiki í næstefstu deild, fyrst árið 1957 og síðast árið 2003.  Keflavík vann sex leikjanna en Breiðablik einn og markatalan er 25-6 fyrir Keflavík.  Magnús Þorsteinsson skoraði þrjú mörk gegn Breiðabliki í B-deildinni árið 2003 og Hörður Sveinsson eitt. 

Liðin hafa leikið sex leiki í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1961 og þann síðasta í fyrra.  Breiðablik hefur unnið fjóra leiki en Keflavík tvo en markatalan er þó 15-9 fyrir Keflavík í bikarleikjum liðanna.  Guðjón Árni Antoníusson hefur skorað eitt bikarmark gegn Blikum.

Síðasta sumar mættust liðin tvisvar í Landsbankadeildinni.  Fyrri leiknum á Kópavogsvelli lauk með 2-2 jafntefli.  Blikar skoruðu sjálfsmark og Patrik Redo kom Keflavík í 2-0 áður en Nenad Zivanovic og Arnar Grétarsson jöfnuðu fyrir heimamenn.  Seinni leiknum lauk með 3-1 sigri Keflavíkur á Sparisjóðsvellinum.  Jóhann Berg Guðmundsson kom gestunum yfir en Patrik Redo skoraði tvö mörk og Guðmundur Steinarsson eitt og tryggðu Keflavík öruggan sigur.  Liðin mættust einnig í 8 liða úrslitum VISA-bikarsins í fyrra.  Þá vann Breiðablik 3-2 á heimavelli sínum.  Guðjón Árni Antoníusson og Guðmundur Steinarsson gerðu mörk Keflavíkur en Jóhann Berg Guðmundsson gerði tvö marka Blika og Magnús Páll Gunnarsson skoraði sigurmarkið undir lok leiksins.

Nokkrir leikmenn hafa leikið með báðum þessum liðum og má þar nefna Kristján Brooks, Kjartan Einarsson, Helga Bentsson og Sigurjón Kristjánsson.

Úrslit í leikjum Breiðabliks og Keflavíkur í efstu deild í Kópavogi hafa orðið þessi undanfarin ár:

2007 Breiðablik - Keflavík 2-2 Sjálfsmark
Patrik Redo
2007 Breiðablik - Keflavík 2-2 Marco Kotilainen
Guðjón Árni Antoníusson
 
2006 

Breiðablik - Keflavík

2-1 Sjálfsmark
2001

Breiðablik - Keflavík

2-4 Guðmundur Steinarsson 2
Gunnar Oddsson
Hólmar Örn Rúnarsson
2000

Breiðablik - Keflavík

2-1 Guðmundur Steinarsson
1999

Breiðablik - Keflavík

2-1 Rútur Snorrason
1996

Breiðablik - Keflavík

1-1 Haukur Ingi Guðnason
1995

Breiðablik - Keflavík

1-1 Ragnar Margeirsson
1994

Breiðablik - Keflavík

1-3 Ragnar Margeirsson 2
Óli Þór Magnússon
1986

Breiðablik - Keflavík

1-0 Skúli Rósantsson