Fréttir

Breiðablik - Keflavík á Laugardag kl. 13:30
Knattspyrna | 1. febrúar 2013

Breiðablik - Keflavík á Laugardag kl. 13:30

Breiðablik og Keflavík leika til úrslita í Fótbolta.net-mótinu í Kórnum á laugardag kl.13:30.  Dómari leiksins verður Vilhjálmur Alvar Þórarinsson og aðstoðardómarar þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Frosti Viðar Gunnarsson.

Keflavík tryggði sér sæti í úrslitaleiknum með því að vinna alla þrjá leiki sína í sínum riðli og það gerðu Blikar einnig í hinum riðlinum.  Það má því reikna með hörkuleik í úrslitunum og bæði lið vilja væntanlega krækja í bikar í fyrsta móti ársins.  Þess má geta að ef leiknum lýkur með jafntefli verður strax gripið til vítaspyrnukeppni til að knýja fram úrslit.