Fréttir

Knattspyrna | 22. september 2006

Breiðablik - Keflavík á laugardag kl. 14:00

Síðasta umferð Landsbankadeildarinnar fer fram á laugardag og þá heimsækjum við Breiðablik.  Leikurinn hefst á Kópavogsvelli kl. 14:00.  Þessi leikur skiptir ekki miklu máli fyrir okkar lið sem er í 4. sæti deildarinnar og það getur ekki breyst á morgun.  Leikurinn skiptir hins vegar öllu fyrir Blikana sem eru í hörðum fallslag en geta tryggt áframhaldandi veru sína í efstu deild með sigri.  Það er því ljóst að heimamenn munu mæta ákveðnir til leiks en það gera okkar menn auðvitað líka eins og í öllum leikjum.  Dómari leiksins verður Kristinn Jakobsson, aðstoðardómarar þeir Pjetur Sigurðsson og Ólafur Ingvar Guðfinnsson, varadómari verður Leiknir Ágústsson og eftirlitsmaður KSÍ Þorvarður Björnsson.

Keflavík og Breiðablik hafa leikið 39 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1971.  Keflavík hefur unnið 19 leiki og Breiðablik 9 en sjö leikjum hefur lokið með jafntefli.  Markatalan er 66-43 fyrir Keflavík.  Stærsti sigur Keflavíkur í leikjum liðanna er 5-0 sigurinn fyrr í sumar en Breiðablik vann 3-0 sigur á heimavelli árið 1982.  Fimm leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn Blikum í efstu deild; Guðmundur Steinarsson hefur skorað fjögur mörk, Stefán Örn Arnarson og Baldur Sigurðsson tvö og þeir Þórarinn Kristjánsson og Símun Samúelsen hafa skorað eitt mark hvor.  Þá skoraði Magnús Þorsteinsson þrjú mörk gegn Breiðabliki í B-deildinni árið 2003.

Liðin hafa leikið fjóra leiki í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1961 og síðast árið 1994.  Hvort liðið hefur unnið tvo leiki og er markatalan 12-3 fyrir Keflavík í þeim leikjum.

Fyrr í sumar mættust liðin á Keflavíkurvelli í 9. umferð Landsbankadeildarinnar og lauk þeim leik með 5-0 sigri okkar manna.  Stefán Örn Arnarson og Baldur Sigurðsson skoruðu báðir tvö mörk í leiknum og Símun Samúelsen eitt.

Nokkrir leikmenn hafa leikið með báðum þessum liðum og má þar nefna Kristján Brooks, Kjartan Einarsson, Helga Bentsson og Sigurjón Kristjánsson.

Úrslit í leikjum Breiðablik og Keflavíkur í Kópavogi hafa orðið þessi undanfarin ár:

     2003    

Breiðablik - Keflavík

0-2 Magnús Þorsteinsson 2
2001

Breiðablik - Keflavík

2-4 Guðmundur Steinarsson 2
Gunnar Oddson
Hólmar Örn Rúnarsson
2000

Breiðablik - Keflavík

2-1 Guðmundur Steinarsson
1999

Breiðablik - Keflavík

2-1 Rútur Snorrason
1996

Breiðablik - Keflavík

1-1 Haukur Ingi Guðnason
1995

Breiðablik - Keflavík

1-1 Ragnar Margeirsson
1994

Breiðablik - Keflavík

1-3 Ragnar Margeirsson 2
Óli Þór Magnússon
1990

Breiðablik - Keflavík

0-1 Rúnar Georgsson
1986

Breiðablik - Keflavík

1-0
1984

Breiðablik - Keflavík

0-1 Magnús Garðarsson