Fréttir

Knattspyrna | 26. júní 2011

Breiðablik - Keflavík á mánudag kl. 19:15

Þá er Pepsi-deildin loksins að hefjast að nýju og komið að fyrsta leik okkar Keflvíkinga í deildinni í 28 daga.  Og það er enginn smáleikur því við heimsækjum Íslandsmeistara Breiðabliks í Kópavoginn mánudaginn 27. júní kl. 19:15.  Það er morgunljóst að hér verður um hörkuleik að ræða en liðin eru bæði komin með átta stig í deildinni, okkar menn eftir sex leiki en Blikar hafa leikið sjö.  Dómari leiksins verður Örvar Sær Gíslason, aðstoðardómarar hans verða Oddbergur Eiríksson og Haukur Erlingsson en eftirlitsmaður KSÍ er Ingi Jónsson.

Keflavík og Breiðablik hafa leikið 44 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1971.  Keflavík hefur unnið 21 leik og Breiðablik 13 en tíu leikjum hefur lokið með jafntefli.  Markatalan er 79-62 fyrir Keflavík.  Stærsti sigur Keflavíkur í leikjum liðanna er 5-0 sigur árið 2006 en Breiðablik vann 3-0 sigur á heimavelli árið 1982 og í Keflavík í fyrra.  Fimm leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn Blikum í efstu deild; Guðmundur Steinarsson hefur skorað fimm mörk, Haukur Ingi Guðnason fjögur og þeir Magnús Þorsteinsson, Magnús Þórir Matthíasson og Guðjón Árni Antoníusson hafa skorað eitt mark hver. 

Keflavík og Breiðablik hafa leikið sjö leiki í næstefstu deild, fyrst árið 1957 og síðast árið 2003.  Keflavík vann sex leikjanna en Breiðablik einn og markatalan er 25-6 fyrir Keflavík.  Magnús Þorsteinsson skoraði þrjú mörk gegn Breiðabliki í B-deildinni árið 2003. 

Liðin hafa leikið sjö leiki í bikarkeppni KSÍ, þann fyrsta árið 1961 og þann síðasta árið 2009.  Breiðablik hefur unnið fimm leiki en Keflavík tvo en markatalan er þó 17-12 fyrir Keflavík í bikarleikjum liðanna.  Guðjón Árni Antoníusson hefur skorað tvö bikarmörk gegn Blikum og Guðmundur Steinarsson eitt.

Síðasta sumar mættust liðin tvisvar í Pepsi-deildinni og unnust báðir á útivelli.  Fyrri leiknum á Kópavogsvelli lauk með 1-0 sigri Keflavíkur þar sem Alen Sutej skoraði markið.  Blikar unnu síðan leikinn í Keflavík 2-0 og þar gerðu Kristinn Steindórsson og  Alfreð Finnbogason mörkin.

Keflavík hefur ekki tapað í síðustu fjórum útileikjum gegn Breiðablik í efstu deild.  Leikurinn í fyrra vannst og þremur leikjunum þar á undan lauk með jafntefli.  Keflavík hefur aðeins tapað þremur af síðustu tólf deildarleikjum sínum í Kópavoginum, unnið fjóra og gert fimm jafntefli.

Nokkrir leikmenn hafa leikið með báðum þessum liðum og má þar nefna Kristján Brooks, Kjartan Einarsson, Helga Bentsson og Sigurjón Kristjánsson.

Úrslit í leikjum Breiðabliks og Keflavíkur í efstu deild í Kópavogi hafa orðið þessi undanfarin ár:

2010 Breiðablik - Keflavík 0-1 Alen Sutej
2009 Breiðablik - Keflavík 4-4 Haukur Ingi Guðnason
Magnús Þorsteinsson
Magnús Þórir Matthíasson
Bjarni Hólm Aðalsteinsson
2008 Breiðablik - Keflavík 2-2 Sjálfsmark
Patrik Redo
2007 Breiðablik - Keflavík 2-2 Marco Kotilainen
Guðjón Árni Antoníusson
 
2006 

Breiðablik - Keflavík

2-1 Sjálfsmark
2001

Breiðablik - Keflavík

2-4 Guðmundur Steinarsson 2
Gunnar Oddsson
Hólmar Örn Rúnarsson
2000

Breiðablik - Keflavík

2-1 Guðmundur Steinarsson
1999

Breiðablik - Keflavík

2-1 Rútur Snorrason
1996

Breiðablik - Keflavík

1-1 Haukur Ingi Guðnason
1995

Breiðablik - Keflavík

1-1 Ragnar Margeirsson