Breiðablik - Keflavík á miðvikudag kl. 19:15
Þá er komið að næsta leik í Pepsi-deildinni og nú er komið að heimsókn í Kópavoginn þar sem okkar menn mæta Breiðablik á Kópavogsvelli á miðvikudaginn en flautað verður til leiks kl. 19:15. Fyrir leikinn er Keflavík í 6. sæti deildarinnar með 17 stig en Blikar eru í 8.-9. sætinu með 13 stig. Dómari leiksins verður Guðmundur Ársæll Guðmundsson, aðstoðardómarar hans verða Gunnar Sverrir Gunnarsson og Óli Njáll Ingólfsson en eftirlitsmaður KSÍ er Þórður Georg Lárusson.
Efsta deild
Keflavík og Breiðablik hafa leikið 51 leik í efstu deild, þann fyrsta árið 1971. Keflavík hefur unnið 23 leiki og Breiðablik 17 en ellefu leikjum hefur lokið með jafntefli. Markatalan er 92-73 fyrir Keflavík. Stærsti sigur Keflavíkur í leikjum liðanna er 5-0 sigur árið 2006 en Breiðablik hefur þrisvar unnið 3-0. Sjö leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn Blikum í efstu deild; Elías Már Ómarsson hefur gert fjögur mörk, Jóhann Birnir Guðmundsson og Magnús Þorsteinsson hafa gert tvö mörk hvor og Bojan Stefán Ljubicic, Hörður Sveinsson, Sigurbergur Elísson og Magnús Þórir Matthíasson hafa skorað eitt mark hver. Það er hins vegar Steinar Jóhannsson sem hefur gert flest mörk fyrir Keflavík gegn Breiðabliki í efstu deild eða átta og næstur er Ragnar Margeirsson með sjö mörk.
B-deild
Keflavík og Breiðablik hafa leikið sjö leiki í næstefstu deild, fyrst árið 1957 og síðast árið 2003. Keflavík vann sex leikjanna en Breiðablik einn og markatalan er 25-6 fyrir Keflavík. Magnús Þorsteinsson skoraði þrjú mörk gegn Breiðabliki í B-deildinni árið 2003 og Hörður Sveinsson eitt.
Bikarkeppnin
Liðin hafa leikið sjö leiki í bikarkeppni KSÍ, þann fyrsta árið 1961 og þann síðasta árið 2009. Breiðablik hefur unnið fimm leiki en Keflavík tvo en markatalan er þó 17-12 fyrir Keflavík í bikarleikjum liðanna.
Síðast
Fyrr í sumar léku liðin í Peps-deildinni og þá á Nettó-vellinum í Keflavík. Okkar menn unnu þá 2-0 þar sem Elías Már Ómarsson gerði bæði mörkin
Bæði lið
Nokkrir leikmenn hafa leikið með báðum þessum liðum og má þar nefna Kristján Brooks, Kjartan Einarsson, Helga Bentsson og Sigurjón Kristjánsson. Fyrir þetta sumar gekk svo Sindri Snær Magnússon í okkar raðir en hann lék með Blikum árið 2012 og í liði Breiðabliks eru tveir fyrrverandi leikmenn okkar, Stefán Gíslason og Gunnleifur Gunnleifsson.
Síðustu leikir
Úrslit í leikjum Breiðabliks og Keflavíkur í Kópavogi hafa orðið þessi undanfarin ár:
2013 | Breiðablik - Keflavík | 3-2 |
Elías Már Ómarsson Bojan Stefán Ljubicic |
2012 | Breiðablik - Keflavík | 0-4 |
Sigurbergur Elísson Jóhann Birnir Guðmundsson Guðmundur Steinarsson Magnús Þorsteinsson |
2011 | Breiðablik - Keflavík | 2-1 | Hilmar Geir Eiðsson |
2010 | Breiðablik - Keflavík | 0-1 | Alen Sutej |
2009 | Breiðablik - Keflavík | 4-4 |
Haukur Ingi Guðnason Magnús Þorsteinsson Magnús Þórir Matthíasson Bjarni Hólm Aðalsteinsson |
2008 | Breiðablik - Keflavík | 2-2 |
Sjálfsmark Patrik Redo |
2007 | Breiðablik - Keflavík | 2-2 |
Marco Kotilainen Guðjón Árni Antoníusson |
2006 | Breiðablik - Keflavík | 2-1 | Sjálfsmark |
2001 | Breiðablik - Keflavík | 2-4 |
Guðmundur Steinarsson 2 Gunnar Oddsson Hólmar Örn Rúnarsson |
2000 | Breiðablik - Keflavík | 2-1 | Guðmundur Steinarsson |
Leikurinn
Tvisvar hefur leikjum Keflavíkur og Breiðabliks í efstu deild lokið með 4-4 jafntefli. Í fyrra skiptið var það í síðustu umferð deildarinnar árið 1973. Keflavík hafði þegar tryggt sér Íslandsmeistartitilinn en Breiðablik var fallið í 2. deild. Sagan segir að Joe Hooly, hinn litríki þjálfari Keflavíkur, hafi verið svo ósáttur við frammistöðu liðsins í leiknum að hann neitað að mæta í sigurhátíð félagsins um kvöldið.
Við rifjum hins vegar upp seinna 4-4 jafnteflið milli þessara liða en það kom á Kópavogsvelli árið 2009. Þar komst Keflavík í 2-0 en Blikar skoruðu fjögur mörk í röð áður en Keflavík jafnaði með tveimur mörkum í lokin.
Smellið á fréttina fyrir neðan til að sjá stærri útgáfu.