Fréttir

Knattspyrna | 24. júlí 2003

Breiðablik á föstudag

Keflavík og Breiðablik mætast í 1. deildinni á morgun, föstudag, og hefst leikurinn kl. 20:00 á Keflavíkurvelli.  Við hvetjum að sjálfsögðu stuðningsmenn til að fjölmenna og koma liðinu aftur á sigurbraut eftir jafntefli í tveimur síðustu deildarleikjum.  Blikunum hefur ekki gengið vel að undanförnu, liðið hefur tapað í síðustu þremur leikjum í deildinni og er nú í 9. sæti deildarinnar með 10 stig úr 10 leikjum.  Þó er ljóst að liðið er sýnd veiði en ekki gefin en í liðinu er m.a. Keflvíkingurinn Kjartan Einarsson.

Af Keflavíkurliðinu er það að segja að þeir Þórarinn Kristjánsson og Ólafur Ívar Jónsson þurftu báðir að fara af velli vegna meiðsla í síðasta leik.  Þórarinn hefur lítið getað æft og verður líklega að byrja á bekknum gegn Blikum; Hörður Sveinsson tekur þá stöðu hans í byrjunarliðinu.  Ólafur er orðinn góður en ekki er ljóst hvort hann eða Scott Ramsay byrja á morgun en Scotty átti góða innkomu gegn Stjörnunni í síðasta leik og skoraði jöfnunarmark okkar.  Brynjar Örn Guðmundsson hefur einnig verið lítillega meiddur og er ekki búið að ákveða hvort hann verður í hópnum gegn Breiðabliki.

Hópurinn:
Ómar
Magnús Þormar
Zoran
Haraldur
Kristján
Guðjón
Hjörtur
Brynjar Örn / Haraldur Axel
Hólmar Örn
Jónas
Stefán
Ólafur Ívar
Scotty
Magnús Þorsteins
Þórarinn
Hörður