Brenne áfram með Keflavík
Endre Ove Brenne hefur skrifað undir nýjan samning við Keflavík og verður hér næsta árið. Hann kemur til landsins um áramót og verður í okkar herbúðum næsta keppnistímabil.
Endre gekk til liðs við okkur um mitt síðasta sumar og lék með liðinu seinni hluta tímabilsins. Hann lék níu leiki í Pepsi-deildinni og átti sinn þátt í góðu gengi liðsins þennan tíma. Endre er 25 ára Norðmaður sem leikur í vörninni. Hann lék með Selfossi árin 2011 og 2012.
Það ér ánægjulegt aðð Endre hafi ákveðið að leika áfram með liðinu enda öflugur leikmaður og góður félagi.