Fréttir

Breyttir leikdagar - Næsti leikur á sunnudag
Knattspyrna | 24. júlí 2013

Breyttir leikdagar - Næsti leikur á sunnudag

Búið er að breyta tveimur leikdögum Keflavíkur í Pepsi-deildinni en næsti leikur er útileikur gegn KR á sunnudag, 28. júlí.  Sá leikur verður á KR-vellinum og hefst kl. 19:15.

Leik ÍBV og Keflavíkur í 10. umferðinni var frestað vegna þátttöku Eyjamanna í Evrópukeppni.  Leikurinn hefur verið settur á 22. ágúst en sú dagsetning gæti breyst eftir gengi ÍBV í Evrópudeildinni.

Þá hefur leikur Keflavíkur og Vals í 16. umferð deildarinnar verið færður fram um einn dag en leikurinn verður á Nettó-vellinum sunnudaginn 18. ágúst kl. 19:15.

Svo er bara að hvetja stuðningsmenn til að mæta á leiki okkar manna og hvetja þá til dáða í baráttunni framundan.