Breyttir leikdagar og tími
Nokkrar breytingar hafa orðið á leikjaniðurröðun hjá liðunum okkar. Þar ber fyrst að nefna að vegna þátttöku Grindavíkur í bikarkeppninni hefur leikurinn gegn þeim í Pepsi-deildinni verið færður aftur um einn dag. Leikurinn verður á Nettó-vellinum mánudaginn 30. júlí kl. 19:15.
Næsti leikur þar á eftir er útileikur gegn Stjörnunni miðvikudaginn 8. ágúst. Hann verður sýndur beint á Stöð 2 Sport og hefst þess vegna kl. 20:00.
Leikur Keflavíkur og Völsungs í 1. deld kvenna hefur verið færður aftur til miðvikudagsins 8. ágúst og verður á Nettó-vellinum kl. 18:00. Næsti leikur hjá stelpunum er þá heimaleikur gegn Álftanesi miðvikudaginn 1. ágúst kl. 20:00 á Nettó-vellinum.